Færsluflokkur: Bloggar

Ég styð Jón Gnarr til allra góðra verka.

Jón Gnarr hefur sýnt það sem borgarstjóri að hann hefur valdið því starfi vel, ólíkt fyrirrennurum sínum, þá sérstaglega borgarstjórum SjálfstæðisFLokksins. Það hafa ekki verið nein leiðindi í borgastjóratíð hans og málefni borgarinnar hafa gengið snurðulaust fyrir sig. Ég treysti Jóni vel til að taka að sér forsetaembættið og að vera sómi Íslands, sverð þess og skjöldur. Þeir hafa ekki verið beysnir þessir forsetar sem verið hafa, og er sá sem nú situr verið þjóð okkar til skammar. Ég skora hér með á Jón Gnarr til að bjóða sig fram og láta ekki skammsýna og fáfróða bloggara hér stoppa sig í því.


mbl.is Jón íhugar forsetaframboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskur ósiður!!!

Það er slæmt að frændur okkar Færeyingar séu farnir að taka upp þann Íslenska ósið að berja potta og pönnur og vera með almenn skrílslætiti til þess eins að trufla þingstörf. Þessi friðsemdar þjóð virðist hafa smitast af skrílnum sem hefur farið með ófriði æ ofan í æ, sem virðist vera skipulagt af innanbúðar mönnum í SjálfstæðisFLokknum. Vonandi að Færeyingar sjái að sér og átti sig á því að þetta eru ekki almenn mótmæli á Íslandi, heldur almenn skrílslæti.


mbl.is Búsáhaldamótmæli í Færeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur er traustsins verður

Fáum mönnum treysti ég jafn vel til að halda utanum þessi mál og Össuri. Hann hefur sýnt það og sannað að hann er traustsins verður, það hefur hann sýnt þjóðinni. Fáir menn hafa unnið sitt verk jafn vel og hann sem ráðherra og sem þingmaður í gegnum árin. Allt tal um að Icesave og ESB aðildarumræðurnar tengist er tómt kjaftæði. 


mbl.is Össur fer með Icesave-málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins friður!!!

Loksins fær alþingi frið til að koma þörfum þingmálum í framkvæmd og spurning hvort þetta fyrirkomulag ætti ekki að vera oftar í staðin fyrir að þurfa að hlusta á stöðugt nöldur og neikvæðni í svokallaðri stjórnarandstöðu.

En svo veltur maður fyrir sér hvort ekki eigi að draga frá launum þingmanna sem ekki mæta til vinnu og svíkjast um....það er alla veganna þannig á öðrum vinnustöðum.


mbl.is Fjáraukalögin samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af fiskhjöllum og kirkjum

Ég er algjörlega sammála húsfriðunarnefnd í þessu máli, byggingarnar sem þarna eru eru fallegar og full ástæða til að friða þær. Það væri algjört brjálæði að leyfa að reisa einhvern fiskhjall þar við hliðina,sem myndi skyggja á þær fallegu byggingar sem þar eru. Árni Johnsen og félagar hefðu bara átt að kynna þetta betur og leggja þetta fyrir alla aðila áður en ætt var af stað með þennan forljóta fiskhjall, eða hvað sem þetta á nú að vera. Allt tal um að þetta sé einhver pólitík er bara þvaður og kjaftæði.


mbl.is Unnið að því að bjarga verðmætum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldeilis munur að vera í Evrópusambandinu!!!

Hugsið ykkur ef við hefðum verið í EB, þjóðarskuldirnar okkar afskrifaðar um 50% plús það að vera með ALVÖRU gjaldmiðil og mikla EB styrki. En það mega ofstækissinnaðir þjóðernissinnar og Evrópuandstæðingar ekki hugsa um, þeirra framtíðarsýn er að hafa áfram ónýtan gjaldmiðil með sína verðtryggingu og reglulega gengisfellingu.


mbl.is Leiðtogar ESB ná saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN HVAÐ ER KRÓNAN BÚIN AÐ KOSTA ALMENNING Í ÞESSU LANDI??

Þetta er ótrúlaga mikil skammsýni hjá Steingrími, hann er með öðrum orðum að verja það að með því að krónan hafi fallið um 80-90 % hafi það bjargað íslensku efnahagslífi, þvílík fásinna. Veit hann ekki hvað það kostar fyrir hinn almenna borgara þessa lands þegar gjaldmiðillinn gengisfellur svona..??. Allt matvöruverð, bensín, olía og öll aðföng til heimilisins hafa snarhækkað í kjölfarið en launin nánast staðið í stað eða jafnvel lækkað ef horft er til áhrifa gengisfallsins, með öðrum orðum, það er almenningur í landinu sem borgar brúsann fyrir þessa hjálp hagkerfisins en ekki "blessuð" krónan.

Að þarna skuli tala "vinstrisinnaður" pólitíkus sem að öllu jöfnu ætti að hafa hag lítilmagnans að leiðarljósi er ótrúlegt. Mér sýnist að þarna afhjúpi Steingrímur sig sem talsmaður LÍÚ og bændamafíunnar sem vil ekkert heitar en að halda í "blessaða"krónuna, þeim, LÍÚ og bændasamtakana, til hagsbótar.


mbl.is Enginn vafi um að krónan hafi hjálpað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með yfir 500 þús. í mánaðarlaun.

Eru lögreglumenn ekki bara of fjölmennir ef þeir geta skroppið svona úr vinnunni, hundruðum saman eins og ekkert sé og spássérað á Laugaveginum. Veit annars ekki yfir hverju þeir eru að röfla, skilst að þeir séu með yfir 500 þus. á mánuði, svo selja þeir sjálfum sér búnaðinn sem þeir nota og græða vel. Annars hefur þetta ekkert með ríkisstjórnina að gera, það var ákveðið að gerðadómur tæki yfir kjaramál lögreglumanna, með þeirra samþykki að sjálfsögðu, og þetta er bara niðurstaðan, take it or leve it.
mbl.is Lögreglan mótmælir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NÍÐINGAR!!!!!

Enn einu sinni kemur manngæska Ísraela í ljós, þeir vaða á skítugum skónum yfir réttmæta íbúa Palestínu og eyðileggja hús þeirra og vatnsbrunna sem er Palestínu mönnum lífsnauðsynlegt. Og svo byggja Ísraels menn hús á landi sem þeir hafa stolið frá Palestínu mönnum eins og eingin sé morgundagurinn.


mbl.is Ísraelar eyðileggja vatnsbrunna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höldum í krónuna!!!

Krónan stendur fyrir sínu. Hún tryggir að LÍÚ mokgræðir á öllu saman, þeir selja afurðir sínar fyrir evrur en borgar sauðsvörtum almúganum á íslandi laun í handónýtum krónum.
mbl.is Krónan gefur eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband